18.4.2009 | 13:58
Hvernig á að skera gulrætur.
11.4.2009 | 09:53
Hvernig á að úrbeina og elda lambalæri og hrygg.
Brúna allt kjöt á háum hita.
Stinga í það kjöthitamæli og taka það út þegar þú hefur náð réttu hitastigi.
Láta kjötið hvíla í 10 - 15 mín og skera svo.
Rare 50c
Medium rare 55 c
Medium 60c
medium well 65c
Well 72c
þeir sem að eiga ekki kjöthitamæli sem að er auðvitað glæpur. þá getið þið farið á þessa slóð og farið eftir upplýsingum sem að þar er að finna http://www.lambakjot.is/content/view/18/60/
Matur og drykkur | Breytt 12.4.2009 kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2009 | 23:32
Hvernig á að hluta kjúkling á tvo vegu.
Að hluta niður kjúkling segir sig sjálft eins og í myndbandinu en hvernig þú eldar kjúkling er annað mál þannig að hann verði safaríkur og góður.
Ég krydda oftast bara með salt og pipar nota kjöthitamæli og sting í bringuna bíð þar til að kjúklingurinn er kominn í 72 gráður það er gott að leyfa lærunum að vera aðeins lengur og læt hann hvíla eftir að ég tek hann út úr ofninum sem að er á 180 gráðum í ca 15 mín og framreiði. Þegar þú eldar kjúklinginn svona þá eldast hann mun fyrr.
27.3.2009 | 12:42
Hvít sósa.
1 lt Mjólk
60gr Smjör
60gr Hveiti
Smjör brætt í potti og hveiti bætt við látið malla í ca 1 mín.
Mjólk bætt út í. Þeytt stöðugt og látið krauma í 10 mín.
Þú bætir bara við mjólk ef að þu vilt hafa hann þynnri.
1. Uppstufur
sykur
salt og hvítur pipar
Byrjaðu á að setja 1 matskeið af sykri út í uppstúfin ásamt því að salta og pipra smá.
Bættu við þar til að þér finnst hann nógu sætur og nógu kryddaður
2. Plokkfiskur
Ýsa eða þorskur
laukur
karöflur
salt og hvítur pipar
Fiskur og kartöflur er helmingur á móti sósu sumir vilja meira aðrir minna. Þannig að ef að þú ert bara með 250gr af fisk og kartöflum þá gerir þú bara ¼ af hvítusósu uppskriftini.
Magn af lauk á að vera eftir smekk
Kryddað til með salt og pipar
3. Fiskibollur í bleikri
Tómatsósa
Kartöflur
Salt og pipar
Hér gilda sömu reglur og með plokkarann fer eftir magni af fisk sem að þú ert að nota .
4. Pastasósa
Beikon eða annað álegg ég nota oft salami
Pasta skiptir ekki máli hvernig soðið eins og stendur á pakkanum
Grænmeti það grænmeti sem að þér þykir best.
Hvítlaukur eins mikið og þér finnst góður byrjaðu á því að setja 1 lauf það er alltaf hægt að bæta við
Kraft byrjaðu á að setja ¼ tening
Salt og pipar

asgerdurjoh
dansige
jamesblond
juljul
ragnarfreyr
